Gulldrengirnir mæta Ungverjum, Sviss og Svartfjallalandi á EM
{{brizy_dc_image_alt entityId=

U17 karla (Eyþór Árnason)

Nú rétt í þessu var dregið í riðla fyrir Evrópumót U18 ára landsliða karla sem fram fer í Serbíu dagana 29.júlí til 9. ágúst.

Ísland verður þar í D-riðli með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi en um er að ræða fyrsta stórmót þessa árgangs hjá íslenska landsliðinu. Þessi árgangur gerði þó góða hluti síðasta sumar og vann Ólympíuhátíð æskunnar nokkuð sannfærandi og ríkir mikil eftirvænting fyrir því að sjá íslenska landsliðið á Evrópumótinu í sumar.

Ísland var í öðrum styrkleikaflokki af fjórum en Svíþjóð er ríkjandi Evrópumeistarar í þessum aldursflokki.

Þjálfarar liðsins eru Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon en ekki er vitað hvort Snorri Steinn Guðjónsson verði einnig á hliðarlínunni líkt og á Ólympíuhátíð æskunnar síðasta sumar.

Riðill A:

Svíþjóð
Slóvenía
Frakkland
Norður-Makedónía

Riðill B:

Þýskaland
Serbía
Ítalía
Tyrkaland

Riðill C:

Portúgal
Króatía
Tékkland
Ísrael

GROUP D

Ungverjaland
Ísland
Sviss
Svartfjallaland

Riðill E:

Danmörk
Noregur
Slóvakía
Pólland

Riðill F:

Spánn
Færeyjar
Austurríki
Finnland

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top