Jökull Blöndal Björnsson (Sævar Jónasson)
Bjarni Fritzson þjálfari ÍR telur það ansi ólíklegt að stórskyttan, Jökull Blöndal Björnsson verði með liðinu í undanúrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudaginn næstkomandi þegar liðið mætir KA. Jökull meiddist snemma í leik gegn Fram í 18.umferð Olís-deildarinnar á dögunum en hann hafði skorað eitt mark úr tveimur skotum áður en hann meiddist. Hann var ekki í leikmannahópi ÍR í tapi liðsins gegn Val á föstudagskvöldið en ÍR tapaði leiknum 41-31. ÍR er á botni Olís-deildarinnar með sjö stig, þremur stigum á eftir Stjörnunni sem er í 11.sætinu með 10 stig. ,,Hann fékk högg ofan á öxlina í byrjun leiks á móti Fram. Hann er mjög ólíklegur í Final Four þannig að við þurfum að kafa djúpt í ÍR leikmannabankann til að fylla hans skarð þar," sagði Bjarni Fritzson í samtali við Handkastið. ÍR og KA mætast í undanúrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudagskvöldið klukkan 20:15 en fyrr sama dag mætast FH og Haukar klukkan 18:00. Úrslitaleikur Powerade-bikarsins fer síðan fram á laugardaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.