Einar Örn Sindrason (J.L.Long)
Miðasala á undanúrslitaleikina í Powerade-bikar karla og kvenna er farin af stað en undanúrslitin hjá stelpunum fara fram annað kvöld og strákarnir leika síðan á fimmtudagskvöldið. Á fimmtudagskvöldið fer tvímælalaust fram áhugaverðasti leikur undanúrslitanna þegar Haukar og FH mætast alvöru Hafnarfjarðarslag. Sömu lið mættust á sama stað í síðustu viku þar sem FH hafði betur. Benedikt Grétarsson var gestur í uppgjörsþætti Handkastsins eftir síðustu umferð þar sem hann viðurkenndi að hafa orðið fyrir vonbrigðum með stemninguna og mætinguna á deildarleikinn. ,,Ég er orðinn svo spilltur af þessum Hafnarfjarðarslögum að ég hefði viljað sá aðeins meiri stemningu fyrir leik og betri mætingu. Það getur vel verið að þetta hafi litast á undanúrslitaleiknum sem framundan er og síðan var vetrarfrí í grunnskólum," sagði Benedikt og hélt áfram. ,,Ég ætla vona að við sjáum 2000 manns á Ásvöllum á fimmtudaginn og ég vona að bæði lið fari að kveikja á stemingunni fyrir þessum leik. Þetta getur verið, eins og klisjan segir áttundi maðurinn.” ,,Ég hef engar áhyggjur, það verður hörku mæting og alvöru stemning í Hafnarfjarðarslagnum," bætti Davíð Már Kristinsson við sem segist hafa vonast til að fá þennan leik í úrslitum en hafi ekki orðið að ósk sinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.