Bjarni með skýr skilaboð: Komið og styðjið strákana úr hverfinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarni Fritzson (Sævar Jónsson

Bjarni Fritzson þjálfari ÍR var að vonum himinlifandi og alsæll eftir eins marks sigur liðsins gegn KA í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Þar með er ljóst að ÍR mætir Haukum í úrslitaleik Powerade-bikarsins á laugardagskvöldið klukkan 18:30.

ÍR var yfir nánast allan leikinn en KA komst einu sinni yfir í leiknum, í stöðunni 29-28 en ÍR-ingar létu það ekki trufla sig og sneri taflinu við og unnu að lokum 32-31.

,,Ég er ekkert eðlilega ánægður, þetta var geðveikt. Ég er ótrúlega stoltur af strákunum sem voru flestir að spila í fyrsta skipti í undanúrslitum. Spennustigið var frábært og orkan sem við settum inn í leikinn frá fyrstu sekúndu var frábær," sagði Bjarni í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Síðan þegar þeir komast yfir þá í raun og veru grípum við mómentið aftur sem var að hverfa frá okkur og við náum að halda haus og halda trúnni og sóttum sigurinn."

ÍR var fimm mörkum yfir þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum en þá kemur slæmur kafli og KA kemst yfir. Hvað gerðist á þessum kafla?

,,Við vorum klaufar og erum að fá slæmar tvær mínútur og lendum í vandræðum með Bjarna. Hann kveikti á sér, hann er auðvitað að spila meiddur og var óvenju rólegur í fyrri hálfleik. Við vorum heppnir með það en hann gaf allt í þetta í seinni og hann er frábær. Við vorum í brasi með hann. Ágúst Elí tekur líka einhverjar vörslur, þetta er frábært lið. Ég er stoltur að við héldum haus, svona er bikarinn."

Bjarni vill fá ennþá fleiri ÍR-inga á leikinn á laugardaginn til að styðja við þetta unga og efnilega ÍR-lið sem er komið í bikarúrslit.

,,Þetta var geðveikt og þetta er svo æðislegt. Ég vil fá stúkuna hinum megin fulla á laugardaginn. Strákarnir eiga það skilið. Þetta eru bara strákarnir úr hverfinu, komið og styðjið þá," sagði Bjarni Fritz. meðal annars í viðtalinu eftir leik.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top