Norðurlöndin: Útisigrar í Danmörku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elvar Ásgeirsson (Attila KISBENEDEK / AFP)

Tveir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, útiliðin unnu sigur í báðum þeirra en í öðrum leiknum var Íslendingaslagur.

Ribe-Esbjerg unnu frábæran útisigur á TTH Holstebro í miklum markaleik, 31-39. Elvar Ásgeirsson hélt áfram að vera öflugur fyrir gestina en hann skoraði úr öllum átta skotum sínum, gaf fimm stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki en samkvæmt einkunnagjöf dönsku deildarinnar var hann besti maður vallarins.

Í liði heimamanna skoraði Jóhannes Berg Andrason eitt mark úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar. Sigurinn var mikilvægur fyrir gestina en þeir hoppuðu upp úr næstneðsta sætinu og upp í það ellefta, þeir eiga ennþá smá von að ná topp átta á meðan Holstebro eru áfram í sjöunda sætinu.

Í hinum leik kvöldsins unnu Ringsted góðan sigur á Nordsjælland, 27-33. Íslendingarnir létu lítið að sér kveða að þessu sinni en Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði eitt mark úr einu skoti á meðan Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr sex skotum og gaf eina stoðsendingu. Ringsted fóru með sigrinum upp í áttunda sætið en spennandi er gríðarleg þar sem aðeins munar fjórum stigum á áttunda sætinu og næstneðsta eða þrettánda sæti.

Úrslit kvöldsins:

TTH Holstebro 31-39 Ribe-Esbjerg

Nordsjælland 27-33 Ringsted

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top