Norðurlöndin: Elverum áfram á sigurbraut
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Þrjú Íslendingalið áttu leik í kvöld í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en í Noregi hélt Elverum áfram sínu striki og unnu þægilegan heimasigur gegn Sandefjord.

Tryggvi Þórisson komst ekki á blað hjá Elverum þegar liðið vann Sandefjord nokkuð örugglega, 34-26. Elverum nú með sex stiga forskot á Kolstad sem eiga þó einn leik til góða en óhætt að segja að staðan sé vænleg hjá Elverum.

Í Danmörku unnu Skanderborg flottan útisigur á Sønderjyske, 25-31 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni var áfram ekki í leikmannahópi liðsins en hann er ennþá að jafna sig eftir kviðslit. Skanderborg í öðru sæti deildarinnar og átt flott tímabil hingað til.

Að lokum förum við til Svíþjóðar en þar gerðu Karlskrona jafntefli í hörkuleik gegn Alingsås, 33-33 urðu lokatölurnar en Arnór Viðarsson átti flottan leik fyrir heimamenn, hann skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf tvær stoðsendingar. Karlskrona í hörku baráttu um sæti í úrslitakeppnina en þeir eru í níunda sætinu með jafnmörg stig og Önnereds sem er í sætinu fyrir ofan þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.

Úrslit kvöldsins:

Elverum 34-26 Sandefjord

Sønderjyske 25-31 Skanderborg

Karlskrona 33-33 Alingsås

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top