Lærisveinar Rúnars töpuðu gegn Flensburg
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar þurftu að sætta sig við fjögurra marka tap á útivelli gegn Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Flensburg vann leikinn 35-31 eftir að hafa verið 20-17 yfir í hálfleik. Patrick Wolz var markahæsti leikmaður vallarins með tíu mörk úr ellefu skotum en Philipp Ahouansou var markahæstur í liði Wetzlar með níu mörk úr sautján skotum.

Wetzlar sem eru í mikilli fallbaráttu komust yfir í stöðunni 6-7 en síðan ekki söguna meir og náði Flensburg mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik í stöðunni 16-10.

Lærisveinar Rúnars gerðu hvað þeir gátu til að gera þetta að alvöru spennuleik og minnkuðu muninn í tvö mörk í stöðunni 30-28 en lengra komust þeir ekki og lokatölur 35-31.

Flensburg fer upp í 2.sætið með sigrinum, upp fyrir Fuchse Berlín með 37 stig en Wetzlar er áfram á botni deildarinnar með átta stig, jafn mörg stig og Leipzig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top