Haukar og Valur einu sinni mæst í bikarúrslitum
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Það verða Haukar og Valur sem mætast í úrslitaleik Powerade-bikars kvenna á Ásvöllum í dag klukkan 15:30. Haukar unnu Fram í undanúrslitum á miðvikudaginn á meðan Valur vann KA/Þór.

Félögin hafa einungis einu sinni mæst áður í bikarúrslitum í kvennaflokki en það var árið 1997 en það var jafnframt í fyrsta skipti í sögu Hauka sem félagið lék í bikarúrslitum kvenna.

Haukar unnu leikinn 16-13 eftir að hafa verið 9-6 yfir í hálfleik en markahæst í liði Hauka var Judit með fjögur mörk Esztergal og Hulda Bjarnadóttir skoraði þrjú mörk ásamt Ragnheiði Guðmundsdóttur. Hanna G. Stefánsdóttir þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í dag skoraði tvö mörk fyrir Hauka ásamt Hörpu Melsteð og Telmu Árnadóttur. Staðan var jöfn 13-13 en Haukar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og unnu þar með fyrsta bikarmeistaratitil Hauka í kvennaflokki.

Hjá Val var Sigurlaug Rúnarsdóttir markahæst með sjö mörk og Gerður Jóhannsdóttir og Sonja Jónsdóttir skoruðu tvö mörk. Lilja Valdimarsdóttir og Hafrún Kristjánsdóttir skoruðu eitt mark hvor.

Vaiva Dalingaite varði 25 skot í marki Vals og Vigdís Sigurðardóttir 13 hjá Haukum.

Haukar hafa unnið bikarkeppnina fimm sinnum en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar eftir sigur á Fram á síðustu leiktíð eftir 18 ára bið.

Kvennalið Vals hefur níu sinnum orðið bikarmeistari síðast árið 2024 en kvennalið Fram hefur oftast unnið bikarkeppnina, sextán sinnum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top