Erum að byggja upp frábæra handboltadeild hjá ÍR
Egill Bjarni Friðjónsson

Bjarni Fritzson þjálfari ÍR getur gengið stoltur frá borði eftir úrslitahelgina í Powerade-bikar karla þrátt fyrir sjö marka tap gegn Haukum í úrslitaleiknum í kvöld, 28-21. ÍR kom flestum á óvart og sló út KA í undanúrslitunum en mætti stærri liði Hauka í kvöld.

ÍR-ingar urðu fyrir mikilli blóðtöku í undanúrslitaleiknum þegar þeirra langmarkahæsti leikmaður síðustu tveggja tímabila í Olís-deild karla, Baldur Fritz Bjarnason meiddist í upphafi leiks gegn KA og var ekkert með liðinu í kvöld. Bjarni segir að það geti að einhverju leiti útskýrt sóknarleik ÍR í fyrri hálfleik en Haukar voru 14-6 yfir í hálfleik.

,,Ég er ekkert smá stoltur af þeim. KA leikurinn var algjörlega stórkostlegur en þetta var erfiður leikur. Haukar eru með frábært lið og voru verðskuldað betri en við í dag," sagði Bjarni í viðtali við Handkastið eftir leikinn í kvöld.

,,Það er stutt á milli leikja og þeir eru með töluvert stærri hóp en við. Það voru nokkrir hjá þeim sem spiluðu lítið á fimmtudaginn og mættu hingað ferskir. Ef þú horfir á töfluna þá eru þeir töluvert betri en við. En fyrir mig var þetta ómetanleg reynsla fyrir strákana, ég er ótrúlega þakklátur fyrir tækifærið og fara í gegnum þetta ferli með þeim. Við erum snemma í ferðalaginu okkar og erum að byggja upp frábæra handboltadeild hjá ÍR og þetta var gott stop í þeirri vegferð, smá prófraun og síðan heldur vinnan áfram."

Viðtalið í heild sinni við Bjarna er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top