Gunnar Magnússon þjálfari bikarmeistara Hauka var að vonum himinlifandi eftir sjö marka sigur Hauka á ÍR í úrslitaleik Powerade-bikarsins sem fram fór á Ásvöllum í kvöld. Haukar unnu leikinn 28-21 eftir að hafa verið 14-6 yfir í hálfleik. Frábær vörn og markvarsla í fyrri hálfleik skóp sigurinn fyrir Hauka og var það síðan algjört formsatriði fyrir liðið að klára síðari hálfleikinn sem ÍR vann með einu marki 15-14. Sjö marka sigur Hauka þó staðreynd og 12 ára bið eftir bikarmeistaratitli hjá Haukum því lokið. ,,Þetta var þröskuldur að fara yfir. Það eru margir leikmenn í Haukum að vinna sinn fyrsta titil í meistaraflokki og þetta var ákveðinn múr að brjóta. Ég er ótrúlega ánægður að upplifa þetta með strákunum og hvernig við náðum að stilla okkur inn í helgina og spila vel," sagði Gunnar Magnússon í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,Við spiluðum mjög vel á móti FH á fimmtudaginn og varnarleikurinn og markvarslan í kvöld var stórkostleg. Ég hefði viljað skora meira og við fengum færi til þess en það var stress í þessu og langt síðan menn unnu titil og einhverjir sem höfðu aldrei unnið titil. Það er ekkert óeðlilegt að það hafi verið stress í báðum liðum." ,,Já, ég kom hingað til að vinna titla og það er ótrúlega mikið hungur í félaginu bæði innan og utan vallar. Við erum með ótrúlega reynslu utan vallar með menn sem hafa verið lengi. Þorgeir, Palli, Aron Kristjáns., Elli sjúkraþjálfari, Andri formaður, við erum með ótrúlega öflugan hóp og menn sem eru með svarta beltið í að vinna titla. Ég náði að virkja þá líka og þeir eiga stóran þátt í þessu og það var markmiðið. Við funduðum í vor og markmiðið var að vinna titla og við erum kominn með einn. Þess vegna kom ég hingað og ég er ánægður með að landa þeim fyrsta," sagði Gunnar meðal annars í viðtalinu við Handkastið eftir leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.