Fingurbrotin og missir af bikarúrslitaleiknum
Baldur Þorgilsson)

Ágústa Rún Jónasdóttir línumaður Vals í Olís-deild kvenna verður frá keppni næstu 4-6 vikurnar. Þetta staðfesti Anton Rúnarsson í samtali við Handkastið.

Ágústa Rún fingurbrotnaði í síðasta leik Vals í Olís-deild kvenna þegar liðið vann tíu marka sigur á Stjörnunni. Ágústa skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í sigrinum gegn Stjörnunni en eftir frekari skoðun kom í ljós eftir leikinn að hún hafi brotnað á vísifingri.

Ágústa lék því ekki með Val í undanúrslitum bikarsins gegn KA/Þór á fimmtudaginn og verður ekki með liðinu í dag gegn Haukum í úrslitaleik Powerade-bikarsins sem hefst klukkan 15:30.

Það er einnig ljóst að Ágústa spilar ekkert meira með Val í Olís-deildinni en þrjár umferðir eru eftir af deildinni áður en úrslitakeppnin hefst.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top