Haukar og Valur mætast í úrslitaleik Powerade-bikars kvenna en þetta er í fyrsta skipti síðan 1997 sem þessi félög mætast í bikarúrslitum. Valur vann KA/Þór í undanúrslitum á meðan Haukar unnu Fram en leikurinn í dag hefst klukkan 15:30. Handkastið hefur fengið nokkra spekinga til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. Júlíus Þórir Stefánsson - Þjálfari kvennaliðs Gróttu: alur - Haukar 27 - 24 Eg held því miður fyrir heimaliðið að Valskonur verði sterkara liðið í þessum leik. Valskonur eru að endurheimta Theu, Elísu, Mariam og Lilju sem eru allt leikmenn sem þekkja þetta svið mjög vel. Ragnheiður Júlíusdóttir - Fyrrum leikmaður Fram og íslenska landsliðsins: Ég spái jöfnum og spennandi leik en held að Valur sé með ögn meiri reynslu í sínu liði hvað varðar úrslitaleiki og ná því að sigla fram úr á seinustu mínútunum. Sigurjón Friðbjörn Björnsson - Aðstoðarþjálfari kvennaliðs FH: Valur hungrar í þennan titil sem slapp frá þeim í fyrra. Annars held ég að þetta verði frekar jafnt framan af en í seinni muni Valskonur síga fram úr og klára þetta á lokakaflanum eins og svo oft áður. Sénsinn hjá Haukum liggur í því að byrja vel og setja alvöru pressu á valsliðið og fara inn í hálfleik með nokkra marka forystu. Þórey Rósa Stefánsdóttir - Handboltaþjálfari og fyrrum landsliðskona: Ég býst við hörkuleik og góðri stemningu. Haukar munu standa vel í Valskonum, markmenn beggja liða verða í aðalhlutverki spái ég. Mikill hraði. En ég tel að Valur muni eiga meira á tanknum í lok leiks, klára þetta á lokasprettinum og sækja bikarmeistaratitilinn sem þær sáu svo sárt á eftir í fyrra. Rakel Dögg Bragadóttir - Fyrrum þjálfari Fram og landsliðskona: Þetta verður jafn leikur og mun velta mikið á markvörslu. Tvær sterkar varnir og landsliðsmarkvarðaparið á sitthvorum endanum. Haukar eru að eflast með hverjum leiknum og hafa unnið Val áður í vetur svo þær mæta með mikið sjálfstraust í þennan leik. Hins vegar mun Valur mæta með mikið hungur í bikarinn eftir að hafa misst af honum á síðasta ári. Rútínan og reynslan hjá Val mun skila þeim titlinum í ár en Haukar munu gefa þeim hörkuleik. Valur tekur þennan leik 26-25.
Valur - Haukar 27 - 24
Ég býst samt við mjög hröðum, skemmtilegum og jöfnum leik. Haukakonur hafa titil að verja og munu vonandi mæta og selja sig dýrt. Það má heldur ekki gleyma að heimakonur búa yfir sigursælasta þjálfara i íslenskum kvennahandbolta sem vonandi veitir liðinu sjálfstraust.
Valur - Haukar 27 - 23
Valur - Haukar 30-25
Valur - Haukar 33 - 28
Valur - Haukar 26 - 25

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.