Staðráðnir í að hefna fyrir bikar skituna í fyrra þegar okkur var hent út
{{brizy_dc_image_alt entityId=


,,Þetta er æðisleg tilfinning. Það hafa liðið alltof mörg ár síðan við vorum bikarmeistarar síðast. Okkur var hent útúr bikarkeppninni í fyrra útaf einhverri skitu. Við vorum staðráðnir í því að hefna fyrir það og vinna í ár," sagði Brynjólfur Snær Brynjólfsson leikmaður Hauka eftir 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik Powerade-bikarsins.

Brynjólfur Snær af hluti af Haukaliðinu sem síðast varð bikarmeistari tímabilið 2013/2014 en var þó ekki í leikmannahópnum í bikarúrslitaleiknum sjálfum.

,,Ég var í mjög litlu hlutverki þegar Haukar urðu síðast bikarmeistarar 2014 þannig þetta var frábært að klára þetta núna."

Hvernig var að koma inn í þennan leik þar sem allir bjuggust við sannfærandi sigri ykkar í leiknum?

,,Þetta var eins og hver annar leikur. Við berum mikla virðingu fyrir þessu ÍR-liði, þeir eru að byggja upp frábæra leikmenn og við vissum að þeir myndu koma inn af krafti og við vildum gera slíkt hið sama. Ef við myndum gera það þá vissum við að við myndum vinna."

Á að fagna þessu vel og innilega í kvöld og fá sér nokkra?

,,Það er leikur á miðvikudaginn, það er fókus, fullur fókus."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top