Verður þjálfari Hauka í þjálfarateymi ÍR í úrslitaleiknum?
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Það vakti athygli margra að Kristinn Björgúlfsson fyrrum þjálfari ÍR var mættur í starfsteymi ÍR í undanúrslitum Powerade-bikarsins þegar ÍR mætti KA á fimmtudagskvöldið.

Kristinn var síðast í þjálfarateymi Þórs í Grill66-deildinni tímabilið 2023/2024 en hefur annars verið reglulegur gestur í hlaðvarpi Handkastsins í vetur auk þess að vera leikgreina fyrir félög bæði hér heima og erlendis.

ÍR mætir Haukum í úrslitum Powerade-bikarsins klukkan 18:30 í kvöld á Ásvöllum. Það verður athyglisvert að sjá hvort Kristinn verði á hliðarlínunni í þjálfarateymi ÍR í leiknum í kvöld líkt og í undanúrslitaleiknum sér í lagi vegna þess að Kristinn er þjálfari hjá Haukum.

Kristinn hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka hjá Haukum og er þjálfari 7.flokks karla á þessu tímabili.

Stóra spurningin er því - verður starfandi þjálfari hjá Haukum í yngri flokkum í þjálfarateymi ÍR gegn Haukum í bikarúrslitaleiknum í kvöld?

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top