23.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær þegar fjórir leikir fóru fram. Magdeburg er á toppi deildarinnar með 42 stig en Füchse Berlin er með 38 stig í 2.sætinu. 24.umferðin í þýsku úrvalsdeildinni hefst á fimmtudaginn er tveir leikir fara fram. Daikin Handbdall gaf út lið umferðarinnar sem lítur svona út. Dominik Kuzmanovic(Gummersbach) Dominik Kuzmanovic markvörður Gummersbach áttið frábæran leik er Gummersbach sigraði THW Kiel. Kuzmanovic varði 20 skot sem samsvaraði 46,5% hlutfallsmarkvörslu. Samuel Zehnder(Lemgo Lippe) Samuel Zehnder leikmaður Lemgo Lippe átti góðan leik er lið hans sigraði Hamburg. Zehnder skoraði 9 mörk úr 10 tilraunum. Felix Claar(SC Magdeburg) Felix Claar liðsfélagi Gísli Þorgeirs, Ómar Inga og Elvars Arnar í Magdeburg átti frábæran í góðum sigri gegn Melsungen. Claar skoraði 12 mörk í leiknum. Felix Aellen(Eisenach) Felix Aellen var góður fyrir lið sitt Eisenach er liðið gerði jafntefli við Erlangan. Aellen skoraði 11 mörk í leiknum. Kai Häfner(Stuttgart) Reynsluboltinn Kai Häfner hægri skytta Stuttgart átti góðan leik er lið gerði jafntefli við Minden. Häfner skoraði 10 mörk úr 10 skotum auk þess að hafa gefið 4 stoðsendingar. Lukas Zerbe(THW Kiel) Lukas Zerbe átti góðan leik er lið hans tapaði gegn lærisveinum Guðjóns Vals í Gummersbach. Zerbe skoraði 5 mörk í leiknum. Elliði Snær Viðarsson(Gummersbach) Elliði Snær átti frábæran leik er lið hans bar sigur af hólmi gegn THW Kiel. Elliði Snær skoraði 9 mörk í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.