Mætti í Hauka til að leika sér – Orðinn byrjunarliðsmaður og bikarmeistari
Sævar Jónasson)

Það er ótrúleg saga línumannsins Arnórs Róbertssonar en eftir tímabilið 2023/2024 var samningi hans við HK sagt upp og stóð hann uppi sem félagslaus. Arnór dó ekki ráðalaus og ákvað að semja við Hauka og leika með B-liði félagsins í Grill66-deildinni.

Arnór hafði nú ekki verið í stóru hlutverki hjá HK, lék hann tíu leiki með liðinu í Olís-deildinni 2023/2024 og skoraði hann þrjú mörk. Þjálfarabreytingar urðu á HK-liðinu, Sebastian Alexandersson fékk ekki áframhaldandi samning og Halldór Jóhann Sigfússon tók við liðinu.

Með Haukum 2 í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð lék hann hinsvegar alla 16 leiki liðsins og skoraði 36 mörk.

Nú er staðan hinsvegar orðin önnur. Í dag er Arnór orðinn byrjunarliðsleikmaður hjá Haukum í Olís-deild karla og varð á laugardaginnn bikarmeistari með liðinu eftir sjö marka sigur á ÍR, 28-21. Í þeim leik skoraði Arnór eitt mark.

Handkastið tók viðtal við Arnór eftir sigurinn á laugardaginn. Þar var hann spurður að því hvort honum hafi dottið það í hug þegar hann gekk í raðir Hauka fyrir síðasta tímabil til að leika með B-liði félagsins að rúmlega ári síðar yrði hann byrjunarliðsmaður í bikarúrslitaleik með aðalliði félagsins og vinna bikarmeistaratitilinn?

,,Nei ég gerði ekki ráð fyrir því. Maður reynir að gera sitt besta og það er gaman að vera kominn í byrjunarliðið og verða bikarmeistari."

En hvernig kemur það til að Arnór kemur óvænt inn í aðallið Hauka á þessu tímabili?

,,Samningi mínum var sagt upp hjá HK og ég spilaði með B-liðinu hjá Haukum í fyrra og var að spila með B-liðinu í upphafi tímabils. Síðan komu upp meiðsli hjá aðalliðinu og ég fékk að fá að æfa með þeim og síðan er ég kominn í byrjunarliðið núna. Ég kom í rauninni bara til að leika mér og halda mér í standi en nú er maður kominn aðeins lengra en það. Æfingatímarnir breytast og maður leggur meiri áherslu á líkamlega hlutann og allt í kringum vinnuna, hvernig maður skipuleggur sig. Æfingatímarnir eru þægilegri og allt töluvert þægilegra," sagði Arnór sem hefur verið í byrjunarliði Hauka í undanförnum leikjum en fyrsti byrjunarliðsleikurinn var gegn Stjörnunni í febrúar.

En hvernig er að standa uppi sem bikarmeistari?

,,Þetta er frábært. Þetta verður ekki betra en það."

Verður hann áfram hjá Haukum á næstu leiktíð?

,,Ég hef ekki hugmynd. Við vorum bara að klára þetta verkefni og síðan skoðum við, hvað kemur næst," sagði Arnór í samtali við Handkastið eftir leik á laugardaginn en Arnór er sonur fyrrum landsliðslínumannsins, Róberts Sighvatssonar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top