Fékk Stjarnan Temu útgáfuna af Alla Eyjólfs?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stjarnan tilkynnti í síðustu viku nýtt þjálfarateymi karlaliðs félagsins frá og með næsta sumri en Sverrir Eyjólfsson verður aðalþjálfari liðsins en hann tók við sem aðstoðarþjálfari liðsins í byrjun janúar og hefur verið Hrannari Guðmundssyni til aðstoðar.

Samningur Hrannars við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið og verður hann ekki áfram með liðið. Tandri Már Konráðsson verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins. Rætt var um nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar í Handkastinu í síðustu viku þar sem Einar Ingi Hrafnsson og Guðjón Guðmundsson voru gestir.

Einar Ingi var spurður að því hvort þessi þjálfararáðning hafi komið honum á óvart?

,,Bæði og. Maður vissi ekki alveg hvaða leið Stjarnan ætlaði að fara í þessu. Það var annað hvort að finna einhvern stærri prófíl og ætla enn og aftur að reyna að rífa þetta upp á einhverjum forsendum sem hefur ekki gengið síðustu 10-15 ár í Garðabænum. Það er ákveðið að fara i þessa drengi sem þekkja félagið vel og hafa verið inn í þessu starfi frá upphafi," sagði Einar Ingi og hélt áfram:

,,Ég ætla ekkert að dæma þetta eitthvað mikið fyrirfram. Ég óska þeim góðs gengis, þetta verður krefjandi verkefni í Garðabænum. Bæði að byggja upp leikmannahóp sem trúir á verkefnið, undanfarin ár hefur verið reynt að blása byr undir vængi og láta menn trúa að eitthvað gæti farið að gerast en síðan hefur það ekki gerst. Það verður kúnst að leikmannahópurinn trúi á framhaldið."

Sverrir Eyjólfsson sem er uppalinn í Stjörnunni hefur litla reynslu af meistaraflokksþjálfun. Hann stýrði Fjölni í tvö ár í Grill66-deildinni en hætti með liðið eftir að hafa komið liðinu upp í Olís-deildina fyrir síðustu leiktíð.

Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins sagðist hafa heyrt þá samlíkingu að Stjarnan hafi fengið Temu útgáfuna af Aðalsteini Eyjólfssyni sem er eldri bróðir Sverris. Aðalsteinn hefur verið í þjálfun í nokkra áratugi meðal annars í Þýskalandi og í Sviss en Stjarnan reyndi að fá Aðalstein sem þjálfara liðsins en þá hafði hann verið búinn að framlengja samningi sínum við Víking. Aðalsteinn er á sínu öðru tímabili með Víking sem situr á toppi Grill66-deildarinnar.

,,Við getum alveg sagt það. Auðvitað eru þeir í vandræðum og hafa verið það í allan vetur með sinn hóp. Þetta er ekki að gerast núna, þetta hefur átt langan aðdraganda. Stjarnan þarf að skoða sína innviði mjög vel, hvernig þeir byggja þetta upp og hvaða leikmenn þeir eru með í höndunum og hvaða leikmenn þeir ætla að hafa. Ég held að reksturinn hefur ekki verið nægilega góður og Hrannar hefur á margan hátt gert mjög vel með þann hóp sem hann hefur verið með. Þeir hafa verið óheppnir með meiðsli en ef Stjarnan ætlar sér einhverja hluti, næstu mánuði og næstu þrjú ári þá verða þeir að gjörsamlega að breyta öllu umhverfi i Garðabænum sýnist mér og vera með leikmannahóp sem þeir geta treyst á," sagði Guðjón og benti á að Stjarnan væri nú þegar búnir að missa tvo byrjunarliðsmenn fyrir næsta tímabil.

Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur samið við Val og þá hefur markvörðurinn, Adam Thorstensen ákveðið að fara til Þýskalands í sumar og leikur í þýsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top