Gerir ekki ráð fyrir Theu í landsleikjunum sem framundan eru
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðið segir það ólíklegt að Thea Imani Sturludóttir leiki með íslenska landsliðinu gegn Svartfjallalandi í tveimur leikjum sem framundan eru. Það er Handbolti.is sem greinir frá.

Fyrri leikurinn fer fram á miðvikudagskvöld klukkan 18:00 á Ásvöllum og seinni leikurinn fer fram ytra á sunnudaginn. Leikirnir eru hluti af leikjum í undankeppni Evrópumótsins sem Ísland er þar í riðli með Svartfjallalandi, Portúgal og Færeyjum. Ísland er án stiga eftir töp gegn Færeyjum og Portúgal en Svartfjallaland er með fullt hús stiga eftir sína leiki.

Thea Imani hefur lítið sem ekkert leikið með Valsliðinu eftir að heimsmeistaramótinu lauk í byrjun desember á síðasta ári. Hún lék takmarkað með Val í bikarúrslitahelginni sem fór fram um helgina en þar var hún hinsvegar lykillinn af því að Valur vann bikarmeistaratitilinn á laugardaginn með frábærri frammistöðu síðustu 15 mínútur leiksins.

„Það segir sig sjálft að það hefur áhrif á okkur að missa út þrjá mjög reynslumikla örvhenta leikmenn,“ sagði Arnar í samtali við Handbolta.is fyrir æfingu íslenska landsliðsins í dag.

Fyrr í dag var greint frá því að Þórey Anna Ásgeirsdóttir hafi dregið sig úr landsliðshópnum en hún gengur með barn undir belti og hefur leikið sinn síðasta leik á tímabilinu. Hún, líkt og Thea varð bikarmeistari með Val um helgina. Áður hefur verið greint frá því að Díana Dögg Magnúsdóttir leiki ekki fyrri leikinn sökum prófs sem hún þarf að taka í námi sínum ytra á föstudaginn.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top