Guðmundur Þórður Guðmundsson fyrrum landsliðsþjálfari Íslands hefur verið án félags frá því að samningi hans við danska úrvalsdeildarfélagið Fredericia var sagt upp fyrir áramót. Guðmundur sem fagnaði 65 ára afmæli sínu á Þorláksmessu á síðasta ári hefur sagt það í viðtölum að undanförnu að framtíð hans sé í óvissu. Í viðtali við Vísi í nóvember sagðist hann vera íhugar næstu skref. „Undanfarin sextán ár hefur mér liðið eins og ég sé gestur í mínu eigin heimalandi. Ég hef verið að koma hingað í stuttan tíma yfir jólin og fer svo aftur. Yfir sumartímann hafa verið mislöng fríin, allt niður í þrjár vikur. Þá er maður að reyna gera allt mögulegt á stuttum tíma og hefur aldrei liðið eins og maður sé heima. Þetta er í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem mér líður eins og ég sé kominn heim," sagði Guðmundur meðal annars í viðtalinu við Vísi. Nú hefur hann hinsvegar verið orðaður við þjálfarastarf erlendis en samkvæmt Luzerner Zeitung er Guðmundur Þórður Guðmundsson á blaði hjá stjórnarmönnum svissneska úrvalsdeildarliðsins, HC Kriens-Luzern. Auk Guðmundar er Andy Schmid þjálfari svissneska landsliðsins einnig á blaði en stjórnarmönnum Kriens-Luzern. Uppi er umræða um það að Thomas Zimmermanns þjálfari liðsins gæti þurft að hætta með liðið vegna þess að hann uppfyllir ekki þær þjálfaramenntunarkröfur sem settar eru á þjálfara sem stjórna liðum í Evrópukeppnum frá og með næsta tímabili. HC Kriens-Luzern voru í riðli með Fram í Evrópudeildinni fyrir áramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.