Myndi elska sjá allt hrynja hjá Kolstad
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tobias Grøndahl, leikmaður Füchse Berlín, talar ekki vel um Kolstad þegar hann er spurður út í fjárhagsvandræði norska Íslendingaliðsins Kolstad. Norðmaðurinn Grøndahl lék um fimm ára skeið með erkifjendum Kolstad í Elverum.

Kolstad er í miklum vandræðum fjárhagslega og hefur nýverið þurft að selja og leysa nokkra lykilmenn undan samningi, auk þess sem aðrir lykilmenn hafa verið beðnir um að taka á sig launalækkun.

Þrír Íslendingar eru á mála hjá norska liðinu Kolstad. Sigvaldi Björn Guðjónsson er fyrirliði liðsins auk þess sem Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson leika með liðinu.

„Hjarta mitt slær fyrir Elverum og satt að segja myndi ég elska að sjá þetta allt saman hrynja [hjá Kolstad] og að Elverum vinni allt heila klabbið,“ sagði Grøndahl í samtali við þýska miðilinn Handball World.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top