Anna Lagerquist leikmaður Evrópumeistara Györ í Ungverjalandi og sænska landsliðsins hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna eftir tímabilið. Þar áður lék hún í Frakklandi, Rússlandi, Danmörku og heimalandinu, Svíþjóð. Þrálát og erfið meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Lagerquist undanfarin ár. Hún meiddist meðal annars á heimsmeistaramótinu sem fram fór á síðasta ári og gat ekki klárað mótið vegna meiðsla. Anna Lagerquist sem verður 33 ára síðar á árinu er á sínu öðru tímabili með Györ en hún gekk í raðir félagsins sumarið 2024 frá Nantes í Frakklandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.