Lék í bestu deild heimi á fimmtugs aldri í gær
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þýski markmannsþjálfarinn og fyrrum landsliðsmarkvörður Þjóðverja, Nikolas Katsigiannis kom inn í leikmannahóp Hannover-Burgdorf fyrir leik liðsins gegn Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í gær.

Það er nú kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að Katsigiannis verður 44 ára í september á þessu ári og lék síðast í efstu deild í Þýskalandi fyrir fjórum árum síðan, eða með Rhein Neckar Lowen árið 2022.

Nikolas Katsigiannis, sem nú starfar sem markmannsþjálfari hjá Hannover-Burgdof en vegna veikinda Joel Birlehm markmanns Hannover-Burgdorf var Katsigiannis kallaður inn í leikmannahópinn. Hann kom síðan við sögu strax í fyrri hálfleik þegar liðið var 9-13 undir og kom þá inná fyrir Simon Gade.

Hann lauk leikmannaferli sínum sumarið 2025 eftir að samningur hans við félagið TuS N-Lübbecke í annarri deild rann út.

Katsigiannis varði ekki skot þær mínútur sem hann var í markinu en Hannover-Burgdorf töpuðu gegn Göppingen 22-28 en liðin eru í 9. og 11. sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top