Rhein Neckar Löwen dæmdur ósigur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen sem Haukur Þrastarson leikur með í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið dæmdur ósigur í viðureign sinni við Lemgo á dögunum. Ástæðan er sú að liðið tefldi fram leikmanni sem ekki hafði skrifað undir samning gegn lyfjamisnotkun. 

Um er að ræða annað atvikið í Þýskalandi á stuttum tíma en Hüttenberg lenti í sömu stöðu í þýsku B-deildinni þegar ungur leikmaður liðsins var í leikmannahópi liðsins í sigri gegn TuSEM Essen.

Rhein Neckar Löwen vann umræddan leik 32-30 en Lemgo er spútnik-lið þýsku úrvalsdeildarinnar og eru í 4.sæti deildarinnar með 34 stig, jafn mörg stig og Kiel sem er í 5.sætinu.

Frá og með 1. janúar á þessu ári tók í gildi ný regla í þýska handboltanum sem gerði félögunum skyldugt að skila inn undirritaðri yfirlýsingu frá öllum leikmönnum í deildinni þar sem leikmenn samþykkja að fylgja gildandi lyfjareglum. Þar samþykkja leikmenn einnig viðurlög ef brot koma upp og viðurkenna vald eftirlitsaðila til að framkvæma lyfjapróf.

Í reglunum er það skýrt tekið fram að leikmenn sem hafa annað hvort ekki undirritað undir þennan samning eða ef félög hafa ekki skilað inn samningunum eru taldir ólöglegir leikmenn og því ekki gjaldgengir í keppnisleikjum þýska handboltans.

„Samkvæmt reglum skal refsing fyrir að uppfylla ekki þetta skilyrði vera sú að liði er dæmdur ósigur,“ útskýrði HBL.

Það er ábyrgð félaga leikmanna að ganga frá samkomulaginu og tilkynna það til þýsku deildarkeppninnar. Svo virðist vera sem að Rhein Neckar Löwen hafi gert mistök í þessu tilfelli en ólöglegi leikmaður Rhein Neckar Löwen hefur ekki verið nafngreindur.

Hægt er að áfrýja dómi mótstjórnar HBL til dómstóla innan þriggja sólarhringa og verða breytingar á stigatöflunni ekki verið gerð fyrr en endanleg niðurstaða kemst í málið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top