Sneri til baka mánuði eftir höfuðhöggið gegn Íslandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danski landsliðsmaðurinn Simon Hald sneri aftur í lið Álaborgar í gærkvöldi í fyrsta skipti á þessu ári en Hald þurfti að yfirgefa keppnisvöllinn í leik Íslands og Danmerkur í undanúrslitum Evrópumótsins fyrir mánuði síðan.

Hald sneri til baka í lið Álaborgar er liðið mætti nýliðum HØJ en Álaborg vann leikinn sannfærandi með tíu mörkum 34-24.

Simon Hald var lagður inn á sjúkrahús vegna óreglulegs hjartsláttar eftir atvikið í leik gegn Íslandi þar sem hann fékk þungt höfuðhögg. Hann hefur ekki spilað síðan, þar sem blóðþynningarlyf hafa haldið honum frá keppni.

,,Það hefur verið leiðinlegt að sitja og horfa á, svo það var frábært að vera kominn aftur," sagði Hald við TV 2 Sport eftir sigurinn í gær.

Álaborg fær Þýskalandsmeistarana í Fuchse Berlín í heimsókn í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn en einu stigi munar á liðunum á toppi riðilsins. Bæði lið hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top