Þórey Anna dregur sig úr íslenska landsliðinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Nýkrýndur bikarmeistari Vals, Þórey Anna Ásgeirsdóttir dregið sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir komandi verkefni.

Ísland mætir Svartfjallalandi tvívegis í vikunni í undankeppni Evrópumótsins. Fyrri leikurinn fer fram hér heima á Ásvöllum klukkan 18:00 á miðvikudaginn. 

Síðari leikurinn fer fram ytra á sunnudaginn.

Þórey Anna er barnshafandi og hefur því þurft að draga sig úr íslenska landsliðshópnum en hún var í lykilhlutverki með kvennaliði Vals um helgina þegar liðið varð bikarmeistari yfir sigur á Haukum. Það verkefni var síðasta verkefni Þóreyjar Önnu áður en hún tekur að sér nýtt verkefni en fyrir á hún eitt barn með Júlíusi Þóri Stefánssyni þjálfara kvennaliðs Gróttu.

Sonja Lind Sigsteinsdóttir leikmaður Hauka hefur verið kölluð inn í hópinn fyrir Þóreyju.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top