Lét mig dreyma um tvo punkta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðið var að vonum ánægður eftir eins marks sigur á Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumótsins á Ásvöllum í kvöld. Lokatölur 28-27 en Ísland náði þriggja marka forystu undir lok leiks 26-23 en íslenska liðið var meira og minna yfir allan leikinn.

Um var að ræða fyrstu stig Íslands í undankeppninni eftir tap gegn Færeyjum og Portúgal í fyrstu tveimur leikjum riðilsins. Arnar Pétursson var spurður að því í viðtali við Handkastið eftir leik hvort hann hafi haft trú á að fara með sigur af hólmi þegar hann mætti í leikinn í dag?

,,Ég lét mig dreyma um tvo punkta. Ég lét mig dreyma að við gætum alveg gert ágætis hluti gegn þeim. Auðvitað hefur þetta verið erfið vika og við höfum misst töluvert af leikmönnum og lykilleikmenn. Hugurinn hefur verið að reyna finna lausnir og púsla þessu saman. Mér fannst það ganga mjög vel og karakter í stelpunum sem gerðu þetta mjög vel."

Svartfjallaland fór alla leið í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins fyrir áramót og vann níu marka sigur gegn Íslandi í milliriðlum keppninnar. Hvar vannst þessi leikur í kvöld?

,,Mér fannst við sterkar karakterslega séð. Við byrjuðum leikinn mjög vel en vorum samt sem áður að klikka á dauðafærum. Það hefði alveg verið auðvelt eftir leikinn gegn þeim í desember að gefa eftir en þær héldu áfram í gegnum það. Við vorum í smá brasi með stóru skyttuna þeirra í fyrri hálfleik en síðan voru stelpurnar sjálfar að leita af lausnum og gerðu það vel. Þetta vinnst á góðum lausnum og sóknarlega fannst mér við ná að ráðast á þær þar sem við vildum ráðast á þær. Þetta vinnst á fullt af hlutum og það var góð stemning í þessu."

Hægt er að sjá lengra og ítarlegra viðtal við Arnar Pétursson hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top