Lykilmaður í norska landsliðinu tjáir sig um ákvörðun norska sambandsins
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Leikmaður norska landsliðsins og leikmaður Füchse Berlin, Tobias Grøndahl segir þungt að horfa upp á að Jonas Wille fái ekki nýjan samning sem þjálfari norska landsliðsins. Samningur Jonas Wille sem þjálfari norska landsliðsins rennur út í sumar en hann tók við norska landsliðinu árið 2022.

Wille var harðlega gagnrýndur eftir frammistöðu norska landsliðsins á Evrópumótinu í janúar.

Tobias Grøndahl leynir því ekki að ákvörðunin varðandi framtíð landsliðsþjálfarans Jonas Wille hafi haft áhrif á leikmannahópinn og vakið ýmsar tilfinningar.

Norska handknattleikssambandið hefur greint frá því að Wille muni ekki halda áfram sem landsliðsþjálfari að núverandi samningi loknum, og sú tilkynning hefur kallað fram viðbrögð meðal leikmanna.

Í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV2 segir Grøndahl að fréttirnar séu þungbærar. Hann kveðst hafa átt afar gott samstarf við Wille og að samskiptin hafi alltaf verið til fyrirmyndar. Að hans sögn hafi samband þjálfarans við hópinn í heild verið mjög gott og samstarfið hnökralaust.

Grøndahl undirstrikar jafnframt að Wille hafi notið trausts og stuðnings leikmannanna allan þann tíma sem hann hefur stýrt landsliðinu.

Áður en Jonas Wille tók við norska landsliðinu árið 2022 var hann aðstoðarþjálfari liðsins er Christian Berge stýrði liðinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top