Næst síðasta umferðin í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í dag með fjórum leikjum. Toppliðin í A-riðli, Álaborg og Fuchse Berlín mætast í Danmörku klukkan 17:45 en einu stigi munar á liðunum fyrir viðureignina. Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í Sporting fara til Póllands og mæta þar Kielce en Kielce er með einu stigi meira en Sporting fyrir leikinn í dag. Liðin gætu því gert sætaskipti sigri Sporting í Póllandi. Handkastið hefur tekið saman tíu markahæstu leikmenn keppninnar eftir 12.umferðina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.