Síðasti leikur gegn þeim sat ennþá í mér
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elín Klara Þorkelsdóttir var stórkostlegt í sigri íslenska landsliðsins gegn Svartfjallalandi í 3.umferð undankeppni Evrópumótsins á Ásvöllum í kvöld. Ísland vann eins marks sigur, 28-27 en úr stöðunni 17-17 var íslenska liðið yfir allan leikinn.

Ísland mætti Svartfjallalandi á heimsmeistaramótinu fyrir áramót þar sem Svartfjallaland vann öruggan níu marka sigur. Elín Klara sagði í viðtali við Handkastið að sá leikur hafi setið í henni.

,,Þessi leikur gegn þeim í desember sat ennþá í mér þegar við spiluðum við þær síðast. Við ætluðum að mæta hingað og berjast og við gerðum það svo sannarlega og kláruðum þetta."

Var íslenska liðið búið að sjá veikleika á liðinu sem þær nýttu sér ekki í leiknum á heimsmeistaramótinu?

,,Við vorum sóknarlega svolítið ragar og vorum alltaf að taka fyrstu árás en í þessum leik var uppleggið að gefa okkur aðeins meiri tíma, reyna að fá þær neðar og við gerðum það mjög vel. Við erum með marga litla og snögga leikmenn og mér fannst við ná að vinna á okkar styrkleikum mjög vel í dag."

Miklar breytingar hafa orðið á íslenska kvennalandsliðinu undanfarna mánuði og fjórir leikmenn sem Arnar Pétursson valdi í 18 manna leikmannahóp Íslands fyrir þetta verkefni gátu ekki spilað í kvöld. Thea Imani Sturludóttir er meidd, Alfa Brá Hagalín einnig. Díana Dögg Magnúsdóttir gat ekki verið með liðinu í kvöld sökum próftöku erlendis og þá er Þórey Anna Ásgeirsdóttir ólétt. Hafði þetta mikil áhrif á undirbúning liðsins fyrir leikinn og hvert var uppleggið fyrir leikinn?

,,Það munar mikið að missa þær en mér fannst Sara Dögg og Lovísa koma ótrúlega sterkar inn hægra megin. En uppleggið var að við ætluðum að berja á þeim og við gerðum það. Við ætluðum líka að hlaupa og við gerðum það allan leikinn og ég held að það hafi skilað sigrinum."

Liðin mætast aftur á sunnudaginn, ytra í Svartfjallalandi.

,,Það verður erfiður útivöllur en við förum út með fullt sjálfstraust. Það er ekkert annað hægt en að mæta á fullu og við erum að fara í annað stríð."

Um var að ræða fyrsta sigur Íslands í undankeppninni eftir tap gegn Færeyjum og Portúgal í fyrstu tveimur leikjum undankeppninnar. Síðan þá fór Ísland á HM þar sem liðið lék sex leiki.

,,Við erum alltaf að finna hvor aðra betur og betur. Við misstum marga eldri leikmenn út og eins og á heimsmeistaramótið var mikill stígandi í liðinu og þetta kom hægt og rólega. Mér finnst þetta vera á uppleið."

Og síðan skemmir ekki fyrir að verið sé að keppast um að fara á enn eitt stórmótið?

,,Klárlega. Það er svo ótrúlega gaman svo það er mikill vilji."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top