Wille hættir með norska landsliðið – Kjelling líklegur eftirmaður hans
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Norska handknattleikssambandið hefur ákveðið að framlengja ekki samningi sínum við Jonas Wille þjálfara karlalandsliðsins. Það er Verdens Gang sem greinir frá.

Fyrrum landsliðsmennirnir Kristian Kjelling er líklegastur til að taka við landsliðinu ásamt Borge Lund. Báðir eru þeir að þjálfa Íslendingalið í norsku úrvalsdeildinni, Kjelling er að þjálfa Drammen og Borge Lund er að þjálfa topplið deildarinnar, Elverum.

Jonas Wille tók við norska landsliðinu árið 2022 eftir að hafa verið aðstoðarmaður Christian Berge. Besti árangur Jonas Wille er 6.sætið á HM 2023 og á Ólympíuleikunum 2024.

Jonas Wille segir í viðtali við Verdens gang að hann hafði viljað halda áfram með liðið.

,,Ég hefði virkilega viljað halda áfram. Ég hef verið skýr með það, bæði með vinnuna með A-landsliðið og ferlana sem við höfum hafið með hæfileikaþróun. Fjögur ár eru frekar stuttur tími hvað varðar þróun," sagði Wille.

,,Ég vil þakka leikmönnunum og liðinu fyrir margar góðar stundir og fyrir fórnfýsi og traust í mörg ár. Þar sem leiðir okkar munu brátt skilja vil ég nota tækifærið og óska ​​bæði liðinu og norska handknattleikssambandinu góðs gengis í framtíðinni, jafnvel eftir að samningstími minn er liðinn."

Ertu vonsvikinn? var hann síðan spurður að.

,,Það er orðið sem ég heyri að þú viljir að ég noti. Ég verð að virða að samningurinn er að renna út. Þá hefur stjórnin fullan rétt til að velja eitthvað annað. Ég verð bara að virða það, jafnvel þótt ég hafi vonast eftir áframhaldandi samning."

Ekki liggur fyrir hvort Wille stýri liðinu í undankeppnisleikjum fyrir HM í maí og þá á norska liðið leiki í Danmörku 19 og 22. mars. Randi Gustad formaður norska handknattleikssbambandsins sagði að það þyrfti að koma í ljós á næstu dögum en sú ákvörðun yrði tekin með Jonas Wille og hag liðsins.

,,Við eigum í nánu samráði við Jonas um þetta. Við gerum ráð fyrir að samningurinn renni út í sumar en erum að reyna að finna bestu mögulegu lausnina með honum."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top