Kiel hefur áhuga á þýskum landsliðsmanni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Szilagyi íþróttastjóri THW Kiel hefur sagt opinberlega frá því að félagið hafi áhuga á þýska landsliðsmanninum, Justus Fischer.

Þýski línumaðurinn er með samning við Hannover-Burgdorf til ársins 2027 en vill spila í Meistaradeild Evrópu.

Það hefur lengi verið orðrómur um að þýsku stórliðin hafi fylgst með hinum 23 ára línumanni TSV Hannover-Burgdorf. Nú hefur Viktor Szilagyi, íþróttastjóri Kiel, staðfest áhugann opinberlega.

,,Það er engin leyndarmál að við teljum Justus Fischer vera góðan línumann,“ sagði Szilagyi við Dyn. Að sögn Szilagyi hefur Fischer bætt sinn leik töluvert á undanförnum árum. „Hann hefur bætt sig og við höfum klárlega áhuga á honum, ég get staðfest það.“

Justus Fischer er fæddur árið 2003 og hefur leikið með Hannover-Burgdorf frá árinu 2020. Hann var hluti af þýska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu í janúar og á Ólympíuleikunum í París árið 2024.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top