Í aðdraganda leiks Íslands gegn Svartfjallalandi var Arnar Pétursson landsliðsþjálfari mikið spurður út í hægri skyttu stöðuna í íslenska landsliðinu en enginn örvhent skytta var í leikmannahópi Íslands gegn Svartfjallalandi á miðvikudaginn. Thea Imani Sturludóttir leikmaður Vals er að glíma við meiðsli, Díana Dögg Magnúsdóttir leikmaður Blomberg-Lippe gat ekki tekið þátt í leiknum vegna anna í skóla og þá gaf Birna Berg Haraldsdóttir leikmaður ÍBV ekki kost á sér. Í viðtali við MBL sagði Arnar að honum þætti vera skortur af örvhentum leikmönnum. ,,Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá finnst mér það já. Ef við horfum niður í yngri landsliðin þá er ekki nógu mikið af örvhentum leikmönnum að koma upp. Það er eitthvað sem þarf að skoða betur, bregðast við og vanda okkur." ,,Rétthentur leikmaður í hægri skyttu í íslenska landsliðinu, árið er 2026,” sagði Arnar Daði Arnarsson í nýjasta þætti Handkastsins þar sem rætt var um málið. Gestur Handkastsins var Gunnar Valur Arason þjálfari kvennaliðs Fjölnis. ,,Þetta er sárt og ég ætla ekki að ljúga því. Ég viðurkenni það að ég hef smá hagsmuni þarna,” sagði Gunnar Valur sem er stjúp bróðir Lenu Margrétar Valdimarsdóttur hægri skyttu Skara í sænsku úrvalsdeildinni. ,,Ég var smá svekktur að hann (Arnar Pétursson) hendi í gömlu góðu blaðagreinina um að það séu engir örvhentir leikmenn á meðan Lena Margrét Valdimarsdóttir og Berta Rut Harðardóttir eru að spila erlendis en þær fá ekki einu sinni kallið um að mæta á æfingu. Mér finnst það frekar sárt en ég er á sama tíma ánægður með það að besti leikmaður Olís-deildarinnar, Sara Dögg Hjaltadóttir hafi fengið tækifæri." Lena Margrét gekk í raðir Skara í sumar frá Fram og þá hefur Berta Rut leikið erlendis undanfarin tímabil bæði í Danmörku og í Svíþjóð. Arnar Pétursson var þjálfari Lenu Margrétar hjá Fram á síðustu leiktíð og ætti því að þekkja hana ágætlega. ,,Hann telur betra að vera með rétthentan hægra megin í stað þess að kalla inn örvhentan leikmann sem hann ætlar greinilega ekki að nota. Það er bara sanngjarnt en mér finnst það ekki rétt. Ef ég hefði fengið einhverntímann tækifæri til þess að kalla inn örvhentan leikmann þegar ég hef verið með rétthentan hægra megin þá hefði ég alltaf gert það.” Arnar Daði benti á að þarna færi ekki hljóð og mynd saman hjá landsliðsþjálfaranum. ,,Sérstaklega þegar þú ert með tvo örvhenta leikmenn sem eru að spila erlendis og landsliðsþjálfarinn hefur kallað eftir því að fleiri leikmenn fari út og spili erlendis þá er helvíti vond skilaboð að það sé stysta leiðin sé að vera heima og spila í Olís-deildinni í kósí, í stað þess að vera í harkinu erlendis. Höfum það alveg á hreinu að þessir leikmenn eru ekki að fara út, útaf peningunum.” ,,Það er nefnilega rétt, þessar stelpur eru aðallega að fara út til að auka möguleikann á sæti í landsliðinu en síðan fá þær það ekki. Mér finnst líklegt að þessar stelpur komi bara heim ef þær fá ekki einu sinni tækifæri á landsliðsæfingum," sagði Gunnar Valur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.