Var Bjarni Fritz með leikþátt í Eyjum?
Sævar Jónasson

ÍR tapaði með fjórum mörkum gegn ÍBV í markaleik í Vestmannaeyjum í 20.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið. Lokatölur 44-40 fyrir ÍBV í hröðum og áhugaverðum leik þar sem Baldur Fritz Bjarnason markahæsti leikmaður ÍR á tímabilinu var fjarverandi vegna meiðsla sem hann hlaut í bikarhelginni um síðustu helgi.

Rætt var um frammistöðu ÍR og ákvörðun Bjarna Fritzsonar að taka þriðja leikhlé sitt í leiknum þegar leikklukkan sýndi 31:32 mínútur.

,,Þú ert að fara í leik þar sem er nánast allt undir. Þú þarft í minnsta þrjú stig í síðustu þremur leikjunum, þú þarft að vinna Stjörnuna í næstu umferð og síðan þarftu að sækja stig gegn ÍBV eða FH í lokaumferðinni og þú færð á þig 44 mörk. Eftir bikarhelgi þar sem vörnin var bara frábær gegn Haukum," opnaði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins umræðuna.

,,Gamlir draugar bönkuðu upp. Það voru 20 mörk komin í leikinn eftir 11 mínútur," bætti Stymmi klippari við.

,,Þeir fundu lykt af einhverjum árangri í bikarhelginni með því að spila vörn. Síðan fer Elvar Otri allt í einu að hlaupa maraþon eins og kanína á vellinum. Þessi frammistaða var vonbrigði," sagði Arnar Daði áður en Gunnar Valur Arason gestur þáttarins greip inn og benti á að í seinni hálfleik hélt hann að ÍR væri að fara klára þetta.

,,Ég hélt í stöðunni 31-30 að þetta væri að fara virka.”

En þá fer umræðan í ákvörðun Bjarna Fritzsonar að taka sitt þriðja leikhlé í leiknum eftir rúmlega 90 sekúndur í seinni hálfleik.

,,Í stöðunni 33-31 fyrir ÍBV þá klikkar Bernard dauðafæri og strax í næstu sókn í stöðunni 34-31 þá klikkar Jökull Blöndal dauðafæri og ÍBV kemst í 35-31. Einhverjir þjálfarar hefðu þá tekið þriðja leikhléið en þá var Bjarni búinn að taka þriðja leikhléið sitt því hann tók sitt þriðja leikhlé á 32. mínútu leiksins, eftir 90 sekúndur í seinni hálfleik. Ég held að Grétar Þór Eyþórsson sem var að lýsa leiknum í Handboltapassanum hafi kallað þetta leikþátt.”

,,En þetta virkaði að einhverju leyti en hvað fór fram í hálfleik? Það sem gerist á þessum 90 sekúndum í seinni hálfleik er að Bernard klikkar dauðafæri, það kemur vissulega einn tapaður bolti og síðan klikka þeir einu færi í viðbót. Eina sem ÍBV gerir er að þeir breyta um vörn, ÍBV var í 6-0 vörn í fyrri hálfleik en Hákon Daði kemur inn varnarlega og er fyrir framan í jóker hlutverki. ÍR byrjuðu seinni hálfleikinn í 7 á 6 og ég get ímyndað mér að í hálfleik hafi mikil áhersla farið á sóknarleik ÍR 7 á 6 gegn 6-0 vörn ÍBV. En common. Ég held að Bjarni hafi sennilega hugsað í því mómenti í stöðunni 33-31 og síðan í 34-31 að nú væri fínt að eiga leikhlé inni," sagði Arnar Daði að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top