Íslenska landsliðið beið stórt tap gegn Svartfellingum 33-24, þegar liðin mættust í síðari leik sínum í undankeppni Evrópumóts kvenna í Podgorica í kvöld en Ísland vann leik þjóðanna á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst í íslenska liðinu annan leikinn í röð með sjö mörk í leiknum. Katrín Anna skoraði sex og Dana Björg þrjú. Sara Sif var virkilega góð stóran kafla af leiknum og varði 12 skot og endaði með 28% markvörslu. Um var að ræða leik í 4.umferð undankeppni Evrópumótsins en Ísland á eftir að mæta Portúgal og Færeyjum í lokaleikjum riðilsins. Staðan var jöfn í hálfleik 13-13. Þegar 40 mínútur voru liðnar hafði íslenska liðið hins vegar náð tveggja marka forskoti 20-18. En þá kom heldur betur slæmur kafli hjá íslenska landsliðinu sem skoraði ekki mark í tólf mínútur. Svartfjallaland skoraði níu mörk í röð og breyttu stöðunni í 27-20. Íslenska liðið kom sér aldrei aftur inn í leikinn almennilega og tapaði að lokum með níu mörkum 33-24. Íslenska liðið situr á botni riðilsins með tvö stig eftir fjóra leiki á meðan Svartfellingar eru efstar með sex stig. Færeyjar og Portúgal eru bæði með fjögur stig en Portúgal vann á sama tíma tveggja marka sigur 25-23 gegn Færeyjum í dag. Mörk Íslands: Elín Klara Þorkelsdóttir 7/1, Katrín Anna Ásmundsdóttir 6, Dana Björg Guðmundsdóttir 3, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Lovísa Thompson 2, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 2, Elísa Elíasdóttir 1, Sandra Erlingsdóttir 1/1. Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 12 – Ethel Gyða Bjaransen 1/1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.