ÍR tapaði með fjórum mörkum gegn ÍBV í markaleik í Vestmannaeyjum í 20.umferð Olís-deildar karla á fimmtudagskvöldið. Lokatölur 44-40 fyrir ÍBV í hröðum og áhugaverðum leik þar sem Baldur Fritz Bjarnason markahæsti leikmaður ÍR á tímabilinu var fjarverandi vegna meiðsla sem hann hlaut í bikarhelginni um síðustu helgi. Rætt var um frammistöðu ÍR og ákvörðun Bjarna Fritzsonar að taka þriðja leikhlé sitt í leiknum þegar leikklukkan sýndi 31:32 mínútur. ,,Þú ert að fara í leik þar sem er nánast allt undir. Þú þarft í minnsta þrjú stig í síðustu þremur leikjunum, þú þarft að vinna Stjörnuna í næstu umferð og síðan þarftu að sækja stig gegn ÍBV eða FH í lokaumferðinni og þú færð á þig 44 mörk. Eftir bikarhelgi þar sem vörnin var bara frábær gegn Haukum," opnaði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins umræðuna. ,,Gamlir draugar bönkuðu upp. Það voru 20 mörk komin í leikinn eftir 11 mínútur," bætti Stymmi klippari við. ,,Þeir fundu lykt af einhverjum árangri í bikarhelginni með því að spila vörn. Síðan fer Elvar Otri allt í einu að hlaupa maraþon eins og kanína á vellinum. Þessi frammistaða var vonbrigði," sagði Arnar Daði áður en Gunnar Valur Arason gestur þáttarins greip inn og benti á að í seinni hálfleik hélt hann að ÍR væri að fara klára þetta. ,,Ég hélt í stöðunni 31-30 að þetta væri að fara virka.” En þá fer umræðan í ákvörðun Bjarna Fritzsonar að taka sitt þriðja leikhlé í leiknum eftir rúmlega 90 sekúndur í seinni hálfleik. ,,Í stöðunni 33-31 fyrir ÍBV þá klikkar Bernard dauðafæri og strax í næstu sókn í stöðunni 34-31 þá klikkar Jökull Blöndal dauðafæri og ÍBV kemst í 35-31. Einhverjir þjálfarar hefðu þá tekið þriðja leikhléið en þá var Bjarni búinn að taka þriðja leikhléið sitt því hann tók sitt þriðja leikhlé á 32. mínútu leiksins, eftir 90 sekúndur í seinni hálfleik. Ég held að Grétar Þór Eyþórsson sem var að lýsa leiknum í Handboltapassanum hafi kallað þetta leikþátt.” ,,En þetta virkaði að einhverju leyti en hvað fór fram í hálfleik? Það sem gerist á þessum 90 sekúndum í seinni hálfleik er að Bernard klikkar dauðafæri, það kemur vissulega einn tapaður bolti og síðan klikka þeir einu færi í viðbót. Eina sem ÍBV gerir er að þeir breyta um vörn, ÍBV var í 6-0 vörn í fyrri hálfleik en Hákon Daði kemur inn varnarlega og er fyrir framan í jóker hlutverki. ÍR byrjuðu seinni hálfleikinn í 7 á 6 og ég get ímyndað mér að í hálfleik hafi mikil áhersla farið á sóknarleik ÍR 7 á 6 gegn 6-0 vörn ÍBV. En common. Ég held að Bjarni hafi sennilega hugsað í því mómenti í stöðunni 33-31 og síðan í 34-31 að nú væri fínt að eiga leikhlé inni," sagði Arnar Daði að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.