Gerir ekki ráð fyrir því að framlengja við HSÍ á næstu dögum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samningur Snorra Steins Guðjónssonar þjálfara karla landsliðs Íslands rennur út á næstu vikum en hann hefur áður sagt að hann sé í viðræðum við HSÍ um nýjan samning.

Snorri Steinn var spurður að því í viðtali við Handkastið fyrr í dag í kjölfar þess að hann tilkynnti landsliðshóp Íslands fyrir tvo æfingaleiki gegn Svíþjóð í næstu viku hvort hann gerði ráð fyrir því að hann yrði búinn að framlengja samningi sínum við HSÍ fyrir þá leiki.

,,Ég á ekkert endilega von á því," sagði Snorri Steinn og bætti við:

,,Ég er ekkert viss um að þetta sé besti staðurinn til að tjá sig eitthvað varðandi innihalds samninga og samningaviðræður. Þetta er bara í ferli. Ég er í samskiptum við minn umboðsmann og hann er í sambandi við HSÍ. Það verður bara að hafa sinn gang. Hvort það taki stuttan eða langan tíma eða gangi ekki verður bara tíminn að leiða í ljós," sagði Snorri Steinn.

Þrátt fyrir að samningur hans við HSÍ renni út á næstu vikum þá er Snorri Steinn farinn að spá í framtíðinni hjá íslenska landsliðinu. Hann hljómar í svörum eins og hann geri ráð fyrir því að vera áfram með íslenska landsliðið.

,,Mér þætti það kjánalegt að vera nálgast þessa leiki eins og þetta gætu verið mínir síðustu leikir. Ég þarf að horfa lengra fram í tímann og mér finnst það þægilegt og betra sem þjálfari. Ef  ég verð þjálfari í janúar, sem ég stefni á að vera þá þarf ég að pæla í því. Ef það fer allt í skrúfuna þá er það einhverja annarra að pæla í því. Ég reyni bara að horfa langt fram í tímann. Ég gerði það þegar ég tók við liðinu og hef alltaf haft Ólympíuleikanna 2028 sem stærstu gulótuna bæði fyrir mig og líka fyrir leikmennina. Ég mun koma til með að halda áfram að vinna samkvæmt því plani þangað til annað kemur í ljós," sagði Snorri Steinn meðal annars í viðtalinu við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top