Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins hefur valið þann leikmannahóp sem tekur þátt í tveimur æfingaleikjum gegn Svíþjóð dagana 19. og 21. mars næstkomandi. Leikirnir fara fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og í Kaplakrika. Landsliðið kemur saman til æfinga 16.mars í undirbúningi sínum fyrir leikina gegn Svíþjóð. Hopurinn er eftirfarandi: Markmenn: Viktor Gísli Hallgrímsson Björgvin Páll Gústavsson Ísak Steinsson Útileikmenn: Orri Freyr Þorkelsson Stiven Tobar Valencia Elvar Örn Jónsson Haukur Þrastarson Þorsteinn Leó Gunnarsson Arnar Freyr Arnarsson Einar Ólafsson Elliði Snær Viðarsson Ýmir Örn Gíslason Gísli Þorgeir Kristjánsson Janus Daði Smárason Reynir Þór Stefánsson Viggó Kristjánsson Teitur Örn Einarsson Óðinn Þór Ríkharðsson Sigvaldi Björn Guðjónsson

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.