Ómar Ingi Magnússon leikmaður Magdeburg og fyrirliði íslenska landsliðsins verður ekki með íslenska landsliðinu í æfingaleikjunum gegn Svíþjóð í mars. Ómar Ingi Magnússon og unnusta hans, Harpa Brynjarsdóttir eiga von á barni á næstu dögum og fær því frí í þessu verkefni. Þetta staðfesti Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands á fréttamannafundi sem HSÍ hélt í tilefni þess að hópurinn fyrir leikina gegn Svíþjóð var kynntur. Leikir Íslands gegn Svíum fara fram hér á landi 19. og 21. mars en fyrri leikurinn fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og sá síðari í Kaplakrika.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.