Valur gætu orðið deildarmeistarar og ÍR gæti fallið í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Heil umferð fer fram í Olís-deild karla í kvöld þegar næst síðasta umferðin verður leikin. Fara allir leikirnir fram klukkan 19:30 en leikur KA og FH verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans en allir hinir fimm leikirnir verða sýndir í Handboltapassanum.

Fyrir umferðina í kvöld er Valur á toppi deildarinnar með 30 stig en FH er með 29 stig í 2.sætinu. Haukar eru í 3.sæti og KA í 4.sætinu með 26 stig.

Valur gætu tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld en til þess þarf félagið að vinna HK á heimavelli og treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum.

Hvað þarf að gerast svo Valur verði deildarmeistari í kvöld?

  • Valur þarf að vinna HK.
  • FH þarf að tapa gegn KA.
  • Haukar þurfa að misstíga sig á heimavelli gegn Selfossi.

Spennan á botninum er ekkert minni en tvö lið eiga ennþá möguleika á að falla í Grill66-deildina. Það eru einmitt liðin sem mætast í Skógarselinu í kvöld, ÍR og Stjarnan.

ÍR er á botni deildarinnar með sjö stig en Stjarnan er í 11.sætinu með 10 stig. ÍR á enn tölfræðilegan séns á að ná Selfoss eða Þór að stigum en liðið stendur verra að vígi gegn þeim báðum í innbyrðisstöðu liðanna svo það myndi ekki duga ÍR.

Hvað þarf að gerast vo ÍR falli í kvöld?

  • ÍR þarf að tapa gegn Stjörnunni í kvöld.

Ótrúleg staða gæti komið upp í deildinni eftir lokaumferðina en ef ÍR vinnur Stjörnuna í kvöld og myndi síðan vinna FH í lokaumferðinni þá færi ÍR í 11 stig.

Ef Stjarnan myndi gera jafntefli við Fram í lokaumferðinni og Þór og Selfoss myndu ekki fá stig í síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni þá myndu öll fjögur neðstu lið deildarinnar enda með 11 stig. Handkastið hefur ekki kafað í þá útreikninga að sjá hvort liðið myndi standa verst að vígi þar.

Fyrst ætlar Handkastið að stilla á Handboltapassann í kvöld og fylgjast með öllum leikjum kvöldsins áður en farið er að spá lengra.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top