Handkastið hefur greint frá því í vikunni að ÍBV verði að öllum líkindum án Petar Jokanovic, Andra Erlingssonar og Dags Arnarssonar vegna meiðsla. En Handbolti.is greindi frá því í gær að búist er við því að enn fleiri leikmenn verði fjarverandi í lokaleik ÍBV í Olís-deildinni í kvöld. ÍBV fær topplið Vals í heimsókn og hefst leikurinn klukkan 19:30 í kvöld eins og allir aðrir leikir lokaumferðarinnar. Valur getur með sigri orðið deildarmeistari. Auk þeirra þriggja leikmanna sem taldir voru upp hér að ofan er sagt frá því á Handbolti.is að Sigtryggur Daði Rúnarsson verði ekki leikfær í kvöld auk Ísaks Rafnssonar og Hauks Leós Magnússonar sem meiddist í síðasta leik gegn Fram. Hákon Daði Styrmisson á von á að fyrsta barn hans komi í heiminn á hverri stundu. Þá eru þrír leikmenn ÍBV að glíma við langvarandi meiðsli og hafa ekki leikið með ÍBV í þónokkurn tíma. Um er að ræða þá Andrés Marel Sigurðsson, Jason Stefánsson og Jakob Ingi Stefánsson. Lokaumferðin í Olís-deild karla: Stjarnan – Fram
HK – Haukar
ÍBV – Valur
Þór – KA
Selfoss – Afturelding
FH – ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.