Hvaða lið verður deildarmeistari? Nokkrar sviðsmyndir
Sævar Jónasson

Þrjú lið geta orðið deildarmeistari í kvöld þegar lokaumferðin í Olís-deild karla fer fram klukkan 19:30. Valur stendur best að vígi í baráttunni um deildarmeistaratitilinn á toppi deildarinnar með 32 stig.

FH er í 2.sæti með 31 stig og Haukar er í 3.sæti deildarinnar með 30 stig.

Valur fer til Vestmannaeyja og mætir ÍBV. FH fær botnlið ÍR í heimsókn og Haukar fara í Kópavoginn og mæta þar HK sem er í baráttu um síðasta lausa sætið í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins.

Handkastið hefur tekið saman þær sviðsmyndir sem geta komið upp í baráttunni um deildarmeistaratitilinn í lokaumferðinni.

Hvað þarf að gerast svo Valur verði deildarmeistari?

  • Valur þarf að vinna ÍBV þá verða þeir deildarmeistari
  • Ef Valur gerir jafntefli og FH vinnur sinn leik með fimm mörkum eða minna verða Valur deildarmeistari
  • Valur tapar, FH tapar og Haukar tapa eða gera jafntefli þá verður Valur deildarmeistari

Hvað þarf að gerast svo FH verði deildarmeistari?

  • Ef Valur tapar og FH vinnur sinn leik gegn ÍR þá verða FH deildarmeistari
  • Ef Valur tapar og Haukar gera jafntefli eða tapa og FH gerir jafntefli gegn ÍR þá verða Valur að tapa með sex mörkum eða meira til að FH verði deildarmeistari
  • Ef Valur gerir jafntefli og FH vinnur sinn leik með sex mörkum eða meira verða FH deildarmeistari
  • Ef Valur tapar, FH gerir jafntefli og Haukar vinna sinn leik þá verða FH deildarmeistari

Hvað þarf að gerast svo Haukar verði deildarmeistari?

  • Ef Valur og FH tapa sínum leikjum og Haukar vinna HK þá verða Haukar deildarmeistari
  • EF Valur og FH tapar og Haukar vinna sinn leik gegn HK þá verða Haukar deildarmeistarar

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top