Lokaumferðin í Olís-deild karla fer fram í kvöld þegar sex leikir fara fram klukkan 19:30. Mikil spenna ríkir fyrir lokaumferðinni en barist er um öll sætin í Olís-deildinni og ekkert lið er öruggt með sitt sæti fyrir umferðina. Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar og tvö lið geta fallið. Tvö lið berjast um að taka síðasta sætið í úrslitakeppninni og tvö lið eru að berjast um 4.sætið sem gefur heimavallarrétt í 8-liða úrslitunum. Handkastið hefur tekið saman 10 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar fyrir lokaumferðina:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.