Óvíst með þátttöku Katrínar Tinnu í næsta leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Undanfarnir dagar hafa verið erfiðir en jafnt og þétt stefni heilsan á rétta leið sagði landsliðskonan og leikmaður ÍR í samtali við Handbolta.is í vikunni en hún fékk þungt höfuðhögg í landsleik Íslands gegn Svartfjallalandi í síðustu viku.

Katrín Tinna þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir seinni landsleik þjóðanna sem fór fram á sunnudaginn auk Hafdísar Renötudóttur sem fékk einnig höfuðhögg í sama leik.

,,Ég hef verið að trappa mig aðeins upp og prófa mig áfram á hjólinu í vikunni. Ég hef fundið fyrir smá hausverk en það er allt á réttri leið. Þetta tekur meiri tíma en ég bjóst við. Ég er að vinna þetta svolítið bara einn dag í einu í samráði við sjúkraþjálfara,“ sagði Katrín Tinna í samtali við Handbolta.is.

Þrjár umferðir eru eftir af Olís-deild kvenna en ÍR fær KA/Þór í heimsókn í Skógarselið á laugardaginn í 19.umferð Olís-deildarinnar. ÍR er í 4.sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi á eftir Haukum sem er í 3.sætinu.

Grétar Áki Andersen þjálfari ÍR sagði í vikunni í samtali við Handkastið að það þyrfti að koma í ljós þegar nær dregur leiknum hvort Katrín Tinna spili með ÍR liðinu á laugardaginn gegn KA/Þór.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top