Þýska landsliðskonan, Xenia Smits sem vann til silfurverðlauna með þýska landsliðinu á heimsmeistaramótinu fyrir áramót er ólétt. Þetta tilkynnti hún á Instagram síðu sinni en hún gengur með sitt fyrsta barn. Hún hefur því ferilinn með nýju félagi á hliðarlínunni því hún gengur í raðir Odense í Danmörku í sumar eftir eins árs veru hjá Metz í Frakklandi. Hún gekk í raðir Metz síðasta sumar eftir að þýska liðið, Ludwigsburg varð gjaldþrota. Hún hafði gert tveggja ára samning við Odense frá og með næsta sumri en ljóst er að hún mun ekki spila með liðinu megnið af næsta tímabili. Xenia sem er fædd árið 1994 hefur leikið tæplega 150 landsleiki fyrir þýska landsliðið og hefur verið lykilmaður í þýska landsliðinu undanfarin ár. Hún lék með Metz á árunum 2015-2020 áður en hún gekk óvænt aftur til þeirra fyrir þetta tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.