Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur HK samið við tvo leikmenn fyrir næstu leiktíð. Um er að ræða þá Dag Sverri Kristjánsson sem er að koma heim eftir þriggja ára veru í Svíþjóð. Fyrstu tvö árin lék hann með Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni en fyrir þessa leiktíð gekk hann í raðir Vinslövs í sænsku næstu efstu deild. Dagur sagði á dögunum í viðtali við Handkastið að planið væri að flytja heim. Dagur sem er örvhent skytta er alinn upp hjá ÍR en gekk í raðir Karlskrona frá ÍR fyrir þremur árum síðan. Er Degi ætlað að fylla skarð Ágústs Guðmundssonar sem er sagður vera á leið til FH í sumar frá HK. Fleiri leikmenn hafa verið orðaðir frá HK meðal annars Haukur Ingi Hauksson, Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson landsliðsmaður Bandaríkjanna. Tveir síðast nefndu eru sagðir vera á leið í Hauka en Haukur er sagður vera á leið til Fram. HK hafa samkvæmt heimildum Handkastsins hinsvegar fyllt skarð Sigurðar Jefferson með Tómasi Braga Starrasyni línumanni Gróttu í Grill66-deildinni. Tómas Bragi Starrason er línumaður fæddur árið 2002 og lék með Fjölni í Olís-deildinni á síðustu leiktíð gekk í raðir Gróttu fyrir leiktíðina og hefur leikið með liðinu í Grill66-deildinni. Grótta er á leið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni en að minnsta kosti þrír leikmenn liðsins hafa nú þegar samið við önnur lið í Olís-deildinni og er þetta því annað árið í röð sem félagið missir töluvert af leikmönnum frá sér áður en keppnistímabilinu lýkur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.