Leik toppliðanna í lokaumferðinni frestað
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mótanefnd HSÍ hefur samþykkt beiðni Vals og ÍBV um að fresta leik liðanna í lokaumferð Olís-deildar kvenna sem átti að fara fram á morgun klukkan 14:00 í Valsheimilinu um viku.

Ástæða frestunarinnar er sögð vera vegna veðurs en mikið óveður er á landinu og er spáð svipuðu veðri á morgun.

Ólafur Víðir Ólafsson starfsmaður mótanefndar staðfesti þetta í samtali við Handkastið en sagði að aðrir leikir umferðarinnar væru enn á dagskrá á morgun. ,,Að svo stöddu fara allir aðrir umferðarinnar fram," sagði Ólafur við Handkastið.

Valur hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og ÍBV er fast í 2.sæti deildarinnar. Leikurinn skiptir því litlu máli fyrir bæði lið og sleppa bæði félögin við fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Nýr leiktími Vals og ÍBV er á laugardaginn eftir viku klukkan 15:00.

Leikir lokaumferðarinnar á morgun:
14:00 ÍR - Selfoss
14:00 Fram - KA/Þór
14:00 Haukar - Stjarnan

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top