Þór semur við fyrrum danskan unglingalandsliðsmann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danski handboltamaðurinn, Bertram Simonsen hefur gengið í raðir Þórs frá danska félaginu Lemvig Thyborøn. Þórsarar tilkynntu þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Þórsarar sem voru nýliðar í Olís-deildinni enduðu í 9.sæti Olís-deildarinnar og eru því komnir í sumarfrí. Þeir eru hinsvegar ekki komnir í sumarfrí á skrifstofunni.

,,Bertram er rétthentur miðjumaður og einnig vinstri skytta og öflugur varnarmaður fæddur árið 2004 í Herning í Danmörku," segir í tilkynningunni frá Þór.

,,Hann spilaði með yngri flokkum Herning FH og Skanderborg ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Danmörku. Bertram hefur leikið með Lemvig undanfarin tvö ár en spilaði þar áður með HC Midtjylland."

Daniel Birkelund þjálfari Þórs ætti að þekkja ágætlega til Bertram en Birkelund þjálfaði Lemvig áður en hann tók við Þór síðasta sumar.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top