Útsláttarkeppnin byrjar í Meistaradeild kvenna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eftir mánaðar hlé snýr Meistaradeild kvenna aftur um helgina þegar útsláttarkeppnin hefst með fyrri leikjum umspilsins. Átta lið berjast um fjögur laus sæti í átta liða úrslitum og ljóst er að hart verður tekist á frá fyrstu mínútu – þar sem hvert mark getur skipt sköpum fyrir seinni leikina.

Leikir helgarinnar

Podravka - Esbjerg | Laugardagur 21.mars kl 15.00
Podravka eru komnar í útsláttarkeppnina í þriðja sinn á síðustu fimm árum, en hafa aldrei farið lengra. Verkefnið verður þó erfitt, enda mætir liðið sterku Esbjerg-liði sem hefur verið eitt öflugasta sóknarlið keppninnar.
Esbjerg hefur skorað yfir 460 mörk á tímabilinu og treystir áfram á stórstjörnuna Henny Reistad, sem er komin með 99 mörk. Podravka hefur á sama tíma átt í vandræðum varnarlega og fengið á sig mikið af mörkum. Heimavöllurinn gæti þó gefið króatíska liðinu möguleika á að halda einvíginu opnu fyrir seinni leikinn.

DVSC - Odense | Laugardagur 21.mars kl 17.00
Hér er einn áhugaverðasti leikur umferðarinnar. DVSC eru aðeins í annað sinn í umspili, en Odense hefur meiri reynslu og stefnir á að komast í átta liða úrslitin í fimmta sinn.
Odense hefur verið með eina öflugusta sóknarlið keppninnar og skorað yfir 33 mörk að meðaltali í leik. DVSC þarf því að treysta á sterkan varnarleik og hægja á tempóinu ef þær ætla sér að eiga möguleika. Fjarvera lykilleikmanna hjá báðum liðum gæti haft áhrif, sem gerir einvígið enn óútreiknanlegra.

Dortmund - FTC | Sunnudagur 22.mars kl 13.00
Dortmund eru komnar í umspil í þriðja sinn en hefur enn tekist að komist áfram í 8-liða úrslitin en þær ætla sér að breyta því núna. FTC er hins vegar reynslumeira lið í þessum aðstæðum og hefur verið stöðugt í útsláttarkeppninni síðustu ár.
Þetta gæti orðið afar jafnt einvígi. Dortmund kemur inn í leikinn með sjálfstraust eftir bikarsigur í Þýskalandi, á meðan FTC hefur sýnt styrk í bæði sókn og vörn. Smáatriðin – og nýting færa – gætu ráðið úrslitum.

Ikast - Gloria Bistrita | Sunnudagur 22.mars kl 15.00
Ikast snýr aftur í umspil Meistaradeildarinnar og mætir Bistrita sem er í fyrsta sinn komið svona langt. Danska liðið hefur meiri reynslu.
Leikurinn gæti þó orðið jafnari en margir búast við. Bistrita hefur verið stöðugt lið með sterka markvörslu og góðan liðsheildarleik. Ikast hefur hins vegar forskot í varnarleik og á einn markahæsta leikmann keppninnar, Julie Scaglione, sem getur skipt sköpum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top