Brynjar Vignir Sigurjónsson markvörður HK fór á kostum í sigri HK gegn Haukum í lokaumferð Olís-deildar karla sem fram fór í síðustu viku. Með sigrinum gulltryggði HK sér síðasta sætið inn í úrslitakeppnina og mæta þar deildarmeisturum Vals í 8-liða úrslitum. HK þar með komið í úrslitakeppnina annað árið í röð undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar. Farið var yfir sigur HK gegn Haukum í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans og þar var meðal annars farið yfir frammistöðu Brynjars Vignis í leiknum. ,,Brynjar Vignir fór á kostum og var alveg geggjaður. Hann var með hverja vörsluna á fætur annarri og á fyrstu 10 mínútum leiksins er hann með einhverja fimm varða bolta. Hann var að verja allar týpur af skotum, dauðafæri og skot fyrir utan. Þetta eru engar smá vörslur," sagði Rakel Dögg Bragadóttir meðal annars um frammistöðu Brynjars Vignis. Frammistöðu Brynjars Vignis og umræðuna um leik HK og Hauka má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.