Það var nóg af nýjum andlitum í alþjóðahandboltanum um helgina en Ísland sat alveg hjá í þeim pakka. Hvað eigum við, við með því? Jú, í það minnsta 27 leikmenn spiluðu sína fyrstu landsleiki á ferlinum um helgina þegar landsleikir fóru fram um alla Evrópu bæði vináttulandsleikir og í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi. Enginn nýliði lék þó í íslenska landsliðinu í vináttulandsleikjunum gegn Svíþjóð sem töpuðust báðir í síðustu viku. Nikolaj Jacobsen þjálfari Dana gaf fimm nýliðum tækifæri með danska landsliðinu í fjögurra liða æfingamóti um helgina er Danmörk mætti Hollandi, Noregi og Bandaríkjunum. Cristoffer Bonde, Victor Norlyk, Frederik Bjerre, Steven Plucnar og Nicolaj Jørgensen fengu allir sínar fyrstu mínútur. Hjá Svíþjóð léku tveir leikmenn sína fyrstu landsleiki á ferlinum gegn Íslandi þeir, Marko Roganovic og Hugo Stuivers. Þrír Norðmenn þeir Lasse Sunde Lid, Kasper Bjanes Iversen og Karl Edward Wallevik léku einni sína fyrstu landsleiki. Hollendingar voru einnig með þrjá nýliða þá, Anes Devedzic, Jur Eussen og Sten Maas og Spánverjar hentu líka þremur mönnum í djúpu laugina. Pablo Guijarro, Antonio Martínez og Ismael El Korchi léku allir sína fyrstu landsleiki fyrir Spán. Romain Mathias lék sinn fyrsta landsleik fyrir Frakka og Lasse Ludwig lék sinn fyrsta leik fyrir Þýskaland. Ungverjar gáfu tveimur leikmönnum tækifæri í sínum fyrsta landsleik þeim, Daniel Sztraka og Levente Tóth. Clemens Möstl, Mats Rudnicki og Nico Sager léku sína fyrstu landsleiki fyrir Austurríki og hjá Sviss léku þeir Nico Eggimann og Nikos Sarlos sína fyrstu landsleiki. Að lokum lék Króatinn Patrik Martinović sinn fyrsta landsleik. Rætt var um íslenska landsliðið í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.